Mjöður




Drottningin

Hefðbundinn mjöður – 13%

Drottningin er gerð úr hinu fínasta appelsínublómahunangi sem völ er á. Þetta er fágað hunangs-vín í góðu jafnvægi með vott af sætu úr hunanginu og sýru úr franska víngerinu. Þetta er dæmi um mjög hefðbundinn mjöð eins og hefur verið bruggaður í gegnum aldirnar og árþúsundin, oft til handa drottningum.



Birtir

Batch nr. 1 – Súkkulaðimjöður – 16%

Birtir er gerður með Belize og Nicaragua kakónibbum frá Omnom Súkkulaðigerð, ásamt hlynsírópi, sér-ristuðum heslihnetum, ristuðu byggi og vanillubaunum. Þroskaður á amerískri eik. Sérstaklega hannaður til að vera páskaegg fullorðna fólksins, en góður allt árið í kring.



Logi

Batch nr. 1 – Brenndur mjöður – 17,1%

Logi er af tegundinni Bochet sem þýðir að hunangið er brennt, eða karamelluserað, áður en mjöðurinn er lagaður úr því. Það dekkir litinn og umbreytir bragðinu á stórfenglegan hátt. Þetta er gert undir opnum eld og því ber hann nafnið Logi. Þroskaður á eikartunnu undan þriggja ára Flóka-viskí í 9 mánuði. Parið með ostum eða köldu veðri.



Rjóð

Kirsuberjamjöður – 6,5%

Rjóð er mjöður af tegundinni melomel – sem þýðir mjöður með berjum eða ávöxtum. Hellingur af kirsuberjum er bætt við mjöðinn í lok gerjunar sem framkallar rjóð-rauða litinn og gefur ljúffengan ilm og bragð af kirsuberjunum. Rjóð er kolsýrð og er best notið köld í góðu glasi ásamt uppáhalds eftirréttinum þínum eða ostum.



Blámi

Bláberjamjöður - 6,5%

Blámi er mjöður af tegundinni melomel – sem þýðir mjöður með berjum eða ávöxtum. Blámi er bróðir Rjóðar og verður til á sama hátt – Bláberjum er bætt við í lok gerjunar sem gefur Bláma djúp-blárauðan lit og náttúrulegt bláberjabragð og angan. Blámi er kolsýrður og best notið kaldur í góðu glasi með eftirréttum, ostum eða einn og sér.



Fluga

Kryddaður mjöður – 5,8%

Fluga er krydduð með íslensku blóðbergi og ætihvannarfræjum. Hún er lauflétt, sæt og kolsýrð og er best notið kæld. Innblásin af hinu íslenska sumri og hausti.

Mjaðargerðin

Við erum að vinna í því að flytja mjaðargerðina á Hellu. Þannig að við getum því miður ekki tekið við heimsóknum eins og er.

En við hlökkum til að taka á móti ykkur á Rangárbakka á Hellu í sumar!



Hafið samband á booking@oldur.is fyrir nánari upplýsingar varðandi heimsókn.